Quantcast
Channel: Home and Delicious
Viewing all articles
Browse latest Browse all 716

heimsókn – utan við bologna á ítalíu

$
0
0

Innlit þessa þriðjudags er í hús sem stendur rétt utan við Bologna á Ítalíu. Þetta er nokkrar myndir úr annars dásamlegu húsi og jafn dásamlegu innliti sem ljósmyndarinn Fabrizio Cicconi og stílistinn Francesca Davoli tóku en þau selja efnið sitt í gegnum umboðsskrifstofu sem heitir Living Inside og er starfrækt af vinkonu okkar hjóna í Mílanó (Gunnar selur efnið sitt hjá henni). Parið hefur hvað eftir annað slegið í gegn að mínu mati með alveg einstök innlit í stóru blöðunum og mjög margt frá þeim hefur birst í breska Elle Decoration. Þetta innlit er einmitt úr allra nýjasta Elle en myndirnar tók ég í gegnum síðuna hennar Victoriuí San Francisco. Fleiri myndir úr þessum þætti má sjá hér. Plönturnar eru með puttann á púlsinum því samkvæmt fréttum frá Mílanó og hönnunarsýningunni þar eru það plöntur og persónulegt umhverfi sem skal ráða ríkjum á næstu misserum. Vei, fyrir því!






Viewing all articles
Browse latest Browse all 716